Til hamingju Davíð

Ætla rétt ad vona ad ritstjóri Morgunblaðsins lesi þessa frétt.
Á sama tíma óska ég honum til hamingju með að hafa skitið allrækilega á samvisku sína og allrar þjóðarinnar með að hafa lýst yfir "stuðningi" okkar við þennan viðbjóð.

Eða var hann kannski búinn að vara okkur við þessu? Veit ekki..... spurjum Hannes Hólmstein, hann virðist vera með þá hluti á hreinu....

mér er óglatt..


mbl.is Leynilegt myndband á Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ammli

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann pabbi, hann á afmæli í dag!!!!!

 

 

Já, pabbi er orðinn tvöfalt eldri enn ég :)

http://mingo.blog.is

44 ára í dag

Til hamingju 

 WizardLoLGrin


1%

Þegar talað var um að mótmælendur séu ekki þjóðin (vísa í ISG) datt mér í hug að leika mér aðeins að tölum.

U.þ.b. 3000 manns tóku þátt í mótmælunum í dag, og ef ekki fleiri í laugardagsmótmælunum undanfarna mánuði. Það mun vera ca 1% af þjóðinni. Í augum margra er þetta varla stór mannfjöldi, hvað þá í mótmælum.

En segjum sem svo að 1% af mannfjölda  BNA tækju sér mótmælastöðu fyrir utan stjórnarráðið í Washington, væru það í kringum 3 000 000 manns.

Tökum sama dæmi með nokkur önnur lönd:

Noregur: 48 000 einstakl.

Danmörk: 55 000 einstakl.

Svíþjóð: 92 000 einstakl.

Kína:13 000 000 einstakl.

 (Árið 1989 mótmæltu stúdentar á Torgi hins himneska friðar, mannfjöldinn náði að hámarki

100 000 einstakl.)

HVERSU MÖRG ÞURFUM VIÐ AÐ VERA TIL AÐ EITTHVAÐ MARK SÉ TEKIÐ Á ÞJÓÐINNI???

Þessir ráðamenn vilja ekki taka mark á mótmælum 3000 einstaklinga,

Hvað með niðurstöður úr einhverri Gallup-könnun þar sem úrtakið var innan við 1000 manns?

Einmitt þá lofa þeir niðurstöðunum ef þær eru sjálfum sér og sínum flokk í hag....

Meira hef ég ekki að segja...


mbl.is Mótmæli halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ættgengur sjúkdómur

Að mínu mati væri eðlilegast að bíða þangað til að barnið verður sjálfráða og getur sjálft tekið ákvörðun um hvort það telji sig tilheyra trúfélagi eða ekki.

Það mætti halda að skráning í trúfélag væri ættgengur sjúkdómur sem erfist einungis frá móður. Woundering 


mbl.is Hver stýrir trúnni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tek af mér nefið

Frábært, þýðir þetta s.s. að ég neyðist til að borga ásamt maka mínum 34 þúsund kr á ári.

Þá er alveg kominn tími á að við fáum einhverju að ráða í þessari frábæru dagskrárgerð. Yndislegar franskar fortíðarmyndir og sem ég gæti vel lifað án.

Ég er baaarjálaður!!!

 En samt ekki, langaði bara að tjá mig um þetta í reiði minni vegna hækkandi gjalda ++++

 

 

 


mbl.is Óljóst hverju nefskattur skilar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími er peningar

Svo á að kalla þetta lággjaldaflugfélag, ég hef nokkrum sinnum gert verðsamanburð á Iceland Express og Icelandair með verð á flugi til London. Þá munar stundum ekki meira en innan við 5000 kr á fluginu. Svo fyrir utan það að þurfa að taka lest/bíl til London.

En til að setja þetta í eitthvað samhengi þá gleymir fólk stundum þá staðreynd að tími er peningar. Nú þarf Guðjón að vakna fyrir allar aldir og eyða að minnsta kosti 3 klst í viðbót í þetta ferðalag. Hann þarf að fara að sofa 3 klst fyrr en venjulega, sem hann hefði getað nýtt í vinnu. Hann metur sinn tíma náttúrulega sjálfur, en í krónum talið þá tel ég að þetta vinnutap gæti léttilega orðið mismunurinn upp í sama fargjald í beinu flugi með Icelandair til kóngsins Köben.

Ef Iceland Express ætlar sér að halda áfram með svona óvissuferðir er þessi svokallaða hagræðing varla til að poppa upp farþegafjöldann á svona tímum.

En gæti kannski verið spennó að skreppa í smá ferð út í bláinn :)


mbl.is Skikkaður til Póllands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ópólitískur

Einhvern tímann heyrði ég að seðlabankastjóri ætti að vera ópólitískur

Shocking

 

 


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjallhvít og verkfæri djöfulsins sjö

Já, eins gott að taka þessa stórhættulegu dverga úr umferð.

Hefur hann ekkert betra að tjá sig um en einhverja krúttulega jóladverga


mbl.is Vill banna jólasveina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband